Leita í fréttum mbl.is
Embla

Morgunblaðskvótakóngarnir og þeirra hirð...

..má eiga sig fyrir mér.

Ég mun ekki blogga lengur á því svæði sem Davíð Oddsson ritstýrir. Ég mun ekki heldur lesa Morgunblaðið, hvorki prentútgáfuna né netútgáfuna.

Ég hef fært mig yfir á wordpress og slóðin er  http://skessa.wordpress.com

Ég mun etv setja þessu færslu inn aftur og aftur og aftur til áherslu....eða læsa blogginu. Hef ekki alveg tekið ákvörðun um það 


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúkasta forsíða ever!

Auglýsi hér með einhverjum sem átti von á að stýrivextir myndu lækka!!

Anyone??? 

Nei...hélt ekki.

En að öðru...eða ekki... eiginlega bara því sama!

Það var verið að benda mér á hversu helsjúk forsíða Fréttablaðsins var á blaði gærdagsins. Hérna getið þið rifjað upp.

http://vefblod.visir.is/index.php?netpaper=1130 

Sjáið þið hversu "sick" þetta er?!

Innfluttir Kínverjar, innfluttur stuðlabergshjúpur annars vegar og lækkandi þjónustustig og töpuð störf í heilbrigðisgeiranum hins vegar

Á sömu forsíðu

Af sömu ríkisstjórn

Áfram Ísland (auglýsi hér með eftir sannfæringakrafti í þessu mjóróma rödd mína) 


mbl.is Stýrivextir áfram 12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjálp! Frelsið okkur frá þessum skaðræðis manni!

Er þetta ekki orðið ágætt bara? 
Er ekki orðið tímabært að þessi maður sleppi því að tjá sig....... 

Nú er hann búinn að veita íslenskum bönkum og bankastarfsmönnum opinbera syndaaflausn og ég þarf bara að sitja undir því!! 

Er það að furða að fólk haldi að hér búi tóm fífl!!

Og þetta er boðskapurinn sem hann ætlar að þvælast með um allan heim!

Mikið væri gott ef einhver stoppaði manninn af.... sendum hann í langt frí til Tortola. 

 


mbl.is Íslensku bankarnir störfuðu samkvæmt reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar mikið verður lítið og lítið verður mikið

Furðulegur fréttaflutningur! 

"Innan við þriðjungur" er bara hellingur þegar verið er að tala um að  hætta að borga reikningana sína. Það er nú ekki beint hægt að tala um að það sé "mainstream" fyrir lítinn Íslending að fara í greiðsluverkfall. Manngildið okkar hefur hingað til mælst í krónum og vinnustundum!

Nú er nærri þriðjungur landsmanna til í að spyrna við fótum og sýna vandlætingu sína með því að fara í greiðsluverkfall.

Það er ekki "innan við frábært" ...það er brilliant alla leið.

Mætti halda að Gylfi hefði verið fenginn til að skrifa fréttina 

 


mbl.is Innan við þriðjungur tilbúinn í greiðsluverkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hey yo! Morgunblaðskvótakóngar.....

.. ég er í kvíðakasti.

Fyrir utan þá staðreynd að það myndi virka eins og áskriftarlegt hara-kiri að ráða Davíð Oddsson sem ritstjóra ...þá held ég að meirihluti þjóðarinnar hafi orðið fyrir alvarlegu kvíðakasti við þessar fréttir sem tröllríða samfélaginu.

Þessi mynd lýsir því ágætlega!

vi_brog_vi_davi_sfrett.jpg

 


mbl.is Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lára Hanna og hinir fjölmiðlarnir

Frábært að sáttir skuli hafa náðst og þetta skyldi ekki ná að verða útblásinn endalaus skandall eins og flest annað á þessu guðsvolaða skeri

EN..........................................................

Eigum við að tala aðeins um hana Láru Hönnu??

Lára Hanna er náttúrulega orðin einskonar afl í íslenskri fjölmiðlun og ég get ekki ímyndað mér tímann og vinnuna sem fer í pistlana hennar.

Svo gerist það orðið oftar og oftar að hinir fjölmiðlarnir spara sér sporin og pikka bara upp vinnuna hennar Láru Hönnu!!

Mér þætti ekkert athugavert við að hinir fjölmiðlarnir borguðu fjölmiðilinn Láru Hönnu fyrir þær fréttir sem þeir sækja beint á síðuna hennar.
Það ætti að vera sjálfsagt mál bara!

Nú og ef þeir eru ekki til í það þá finnst mér að við sem drekkum í okkur fróðleikinn sem hún tekur saman fyrir okkur ættum að geta lagt smápening inn á einhvern reikning.
Hún leggur rosalega vinnu í þessa pistla sína og ég myndi ekki vilja vera án þeirra

Bara sona pæling 


mbl.is Ríkisskattstjóri biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maybe I Should Have

Guð blessi Ísland........

Ekki mér að kenna.......

jadíjadíjadí

Ótrúleg lufsa þessi maður. Og örlögin gráglettin að vanda.... hann var forsætisráðherra Íslands þegar við þurftum almennilegan forsætisráðherra.

Og nú nýtur Sjálfstæðisflokkurinn mest fylgis samkvæmt skoðanakönnunum. Flokkurinn sem var við völd í tæplega 18 ár og kom okkur á þennan stað

Erum við fífl? 


mbl.is Hefðu átt að minnka umsvifin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptaráðherra tekinn í bakaríið af "almenningi"

Gandri, Guðmundur Andri Skúlason, stjórnarmaður í BORGARAhreyfingunni tekur Gylfa viðskiptaráðherra í bakaríið!! 

Kíkið á 4:30

Mjög flott uppákoma!

 


Þvílíkt bull.....

Nú hlusta ég á Þór Saari ljúga eins og hann er langur til í Kastljósi. 

Jebb..ég sagði ljúga af því að hann lýgur eins og hann er langur til.... no pun intended

Borgarahreyfingin hefur EKKI breytt stefnu sinni
Þingmenn þurfa EKKI að sverja eið

Margrét Tryggvadóttir kom sjálf með fyrirspurn á stjórnarfund þar sem hún bað um að möguleikinn til að bjóða fram til sveitarstjórnakosninga.

Hræsni, lygi og ég er ferlega þreytt á þessu.

En ég ætla að leyfa mér að gleðjast yfir því að nú getum við í nýrri stjórn farið að einbeita okkur að því að vinna að málum Borgarahreyfingarinnar með félagsmönnum hennar.

 Júhú!! 


mbl.is Hreyfingin verður til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gott...

Það er ekki gott að nágrönnunum líði illa yfir málningaslettunum.

En mér finnst verra ef þeim líður illa vegna þess að heimilisbókhaldið þeirra er allt í klessu án þess að þeir hafi nokkuð gert til að verðskulda það
Íslendingum líður almennt illa ef þeir leggja í að hugsa meira en einn dag í einu og það er erfitt að fara fram á það við fjölskyldufólk að það taki einn dag í einu.

Fólkinu í rauðslettu húsunum virðist samt ekkert líða neitt sérstaklega illa. Enda virðist heimilisbókhaldið þeirra vera í sæmilegu lagi og glæpir þeirra virðast lítið gera nema auka við innistæðuna á Tortola

Það má endalaust deila um það hvort það er ásættanlegt að skvetta málningu á hús........ en mér finnst hús Wernersbræðra flottara með rauðum slettum en án.


mbl.is Nágrönnum auðmanna líður illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Moi

Heiða B. Heiðars
Heiða B. Heiðars

Hef verið yfirlýstur andstæðingur fréttalinkabloggara.... En framvegis mun ég linka við allar þær fréttir af ástandi þessarar þjóðar sem ég kemst yfir að linka við
Netfangið mitt er: geislabaugur@gmail.com

Bloggvinir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.2.): 22
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 132
  • Frá upphafi: 547211

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 101
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband