Leita í fréttum mbl.is
Embla

Morgunblaðskvótakóngarnir og þeirra hirð...

..má eiga sig fyrir mér.

Ég mun ekki blogga lengur á því svæði sem Davíð Oddsson ritstýrir. Ég mun ekki heldur lesa Morgunblaðið, hvorki prentútgáfuna né netútgáfuna.

Ég hef fært mig yfir á wordpress og slóðin er  http://skessa.wordpress.com

Ég mun etv setja þessu færslu inn aftur og aftur og aftur til áherslu....eða læsa blogginu. Hef ekki alveg tekið ákvörðun um það 


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Bless, bless.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 23:18

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ætlaði að stofna wordpress blogg í dag brjann.wordpress.com var upptekið en þó ekki til og fjas.wordpress.com hafði verið lokað en þó ekki laust að nýju.

Brjánn Guðjónsson, 24.9.2009 kl. 23:18

3 identicon

Drama drama. Afhverju ertu að þessu Heiða? Mér finnst þú vera heldur of dramatísk. Það að Davíð Oddson sé orðinn ritstjóri Morgunblaðsins breytir ekki því að á morgun sem aðra daga er full þörf á þinni rödd hér á moggablogginu. Þú átt aldrei eftir að fá eins mikla athygli á þinum orðum á wordpress.com. Hugsaðu þetta aðeins. Davíð mun ekki hætta við að vera ritstjóri þó að þú hættir að blogga hér............

Þórður Möller (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 23:23

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

mbl.is er statískur fréttavefur. örfáar nýjar fréttir á dag sem koma inn meðan aðrir miðlar uppfærast ótt og títt. því er það varla fréttamennskan sem heldur þesum vef á lífi. kannski bloggið hafi þar eitthvað að segja?

ég skil skessuna vel. þetta er ekki spurning um athygli og vinsældir. það er nóg af fólki í þeim bransanum, ss. stebbi fr.

sumir hugsa út fyrir eigið egórassgat.

kíki á þig Heiða, á nýja heimilinu :)

Brjánn Guðjónsson, 24.9.2009 kl. 23:35

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Ókey.. þetta er fucking óþolandi og óásættanlegt með Davíð, en gæti verið að þetta sé tvíeggja.. þ.e. að vinstri bloggarar hverfi af moggablogginu undir velþóknun Davíðs. í stað þess að spyrna við fæti hér og reyna að koma góðu til leiðar. Hljómar kannski asnalega, en ég er svona að velta þessu fyrir mér.

Hinsvegar ef þeir sem bloggað hafa gegn íhaldinu ætla á braut, væri þá ekki gott að fólk grúppaði sig saman.. kæmu sér td saman um að blogga á ákveðnum stað og með því skapa eftirtekarverðara svæði ? nei..bara svona pæling..

Svo er síðan auðvitað annað mál hvort standi til að loka eða afmarka moggabloggið eins og hvíslast hefur, þá er auðvitað sjálfhætt.

hilmar jónsson, 24.9.2009 kl. 23:37

6 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Þórður... ég barasta get ekki hugsað mér að halda þessu áfram eins og ekkert hafi gerst

Það er víst nóg að gerast í þessu samfélagi sem ég hef nákvæmlega enga stjórn yfir. Þessu get ég stjórnað.. ég mun ekki lesa moggann né nota þjónustu hans á neinn hátt.

Það er mín leið til að sýna vandlætingu mína.

Heiða B. Heiðars, 24.9.2009 kl. 23:38

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er að pæla í því hvernig ég á að snúa mér, hm.. er búin að stofna blogg hér og þar sko.

Kíki á þig auðvitað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.9.2009 kl. 23:42

8 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Skil þig ...og vænti að heyra frá þér áfram á öðrum vef! (...er sjálf ekki áskrifandi á mbl.is)

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 24.9.2009 kl. 23:43

9 identicon

I applaud your decision. It is downright uncomfortable to even click on an mbl blogg right now, especially on the heals of last weeks discussion about shutting down "nameless" comments. I just think the spirit of blogging is such that it should not be too linked to any one media outlet, anyhow. In the states, the bloggers whose blogs are listed with Time Magazine, etc., are those magazine's employees. I absolutely agree with Bjann, by having your blog on mbl, you look almost like an employee of that newspaper. They have to do less reporting because your blog is there, so in a way they can get away with firing all those people today. The only nice thing about having a blog on mbl.is is how easy it is to link to news stories, but there must be some other way to do that.

The American (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 23:46

10 identicon

Það var undir stjórn Ólafs Stephensen sem mér var hótað af Mbl bloggfólki. Og það var undir stjórn Ólafs þegar þaggað var niður í nafnlausum bloggurum.

Bloggi fjölda fólks hefur verið lokað skýringarlaust, þ.e. einhvert almennt kjaftæði notað sem réttlæting. 

Ég verð að viðurkenna að í mörgum tilvikum fagna ég tilkynningum frá bloggurum sem ætla að hætta, ansi margir sem engin eftirsjá er eftir, en ég er ekki sáttur við þetta dramakast frá þér, enda skemmtilegra að dissa þig en marga aðra.

Ég skil heldur ekki þessa áráttu að hægrimenn skuli ekki fá að hafa rödd í fjölmiðlaflórunni. Er ekki full ástæða til að láta reyna á hvort eigendur Mbl skipta sér af bloggumræðunni á óeðlilegan hátt?

Eins og staðan er í dag, er Mbl eini miðillinn sem flytur fréttir og fréttaskýringar, og býður upp á bloggtengingu. Það er náttúrulega óþolandi að horfa á dramamköst vinstrimanna gera tilraun til að eyðileggja þennan lýðræðislega möguleika, sem ekki er í boði hjá miðlum Jóns Ásgeirs.

Í framhaldi af þessu er eðlilegt að skýra frá því að félagi Deux hefur löngum talist til vinstri. Vinstrimönnum er þó að takast að færa mig sífellt lengra til hægri með einræðistilburðum og einfeldningshætti.

Ef þið girðið ykkur ekki í brók, enda ég sem skoðanabróðir Davíðs, Björns og Sigga Kára. Ekki viljið þið hafa það a samviskunni?

Deux (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 23:47

11 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Ég kíki á þig á nýju síðunni þinni. Er sjálfur að pæla. Er reyndar með síðu á visir.is sem heitir Klakinn. Hef ekki notað hana enn, opnaði hana til öryggis ef mbl.is lokaði á mig vegna kjaftsins á mér.

Kveðja.

Þráinn Jökull Elísson, 24.9.2009 kl. 23:53

12 Smámynd: Katrín Linda Óskarsdóttir

Haldið þið ekki að það gæti verið áhugavert að fylgjast með Morgunblaðinu núna eftir að Davíð sest þar á ritstjórastól????  Um að gera að fylgjast með og leggja orð í belg ef þú / þið eruð ekki sammála honum

Katrín Linda Óskarsdóttir, 25.9.2009 kl. 00:01

13 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Þið verðið eiginlega að tjatta við mig á nýju síðunni minni. Ég er hætt hérna :D

Heiða B. Heiðars, 25.9.2009 kl. 00:07

14 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

See you there.

Svanur Gísli Þorkelsson, 25.9.2009 kl. 01:53

15 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Flott hjá þér. Ég er líka hættur hérna á moggabloggi.

Guðmundur Jónsson, 25.9.2009 kl. 06:10

16 identicon

Mér líst mjög vel á ad fólk flytji blogg sitt.   Vona ad sem flestir segi upp áskrift einnig.  Um ad gera ad láta verkin tala.

Best vaeri ad allir sem flestir faeru á sama stad.

Reinold (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 13:13

17 Smámynd: Hörður B Hjartarson

   Sæl verið þið öll sem eitt!

   Ég geri mér (að ég held) fulla grein fyrir því að það má segja , að vissu leiti , að D. O. hafi verið aðalarkitektinn af sukkinu - þó svo hann hafi hatað útrásarvíkingana eins og pestina , en við skulum ekki gleyma því , að hann á einnig sínar góðu hliðar , það þekki ég af eigin skinni .

   Vissulega er það skoðun mín að D.O. og Halldór Ásgrímss. hefðu að sjálfsögðu átt að vera dregnir fyrir dóm fyrir það að ákveða það , aðeins tveir menn , að við íslendingar skyldum styðja innrásina í Írak , einnig má segja það um kallinn að hann hafi einkavinavætt hæðstarétt , sem og komið syni sínum í gott starf , einnig sýnt oft og iðulega einræðisherratakta , svo sterklega að það hálfa væri nóg .

   Samt sem áður ætla ég að halda áfram að blogga hérna , því það er einu sinni þannig bæði með D.O. og Agnesi Braga , að þótt bæði séu að sumu leiti meingölluð , þá hafa þau helling til síns máls .

   Ef eitthvert ykkar rekst á gallalausan mann , endilega , þá látið mig vita .

   Að lokum vil ég skora á ykkur , og þá sérstaklega þig Heiða , að endurskoða hug ykkar (þinn) , málið er að það er hægt að ylja öllum hér undir uggum , og einu get ég nánast lofað ykkur ; ef lokað verður mínu bloggi , þá fer ég beinustu leið upp í Hádegismóa og heimta viðtal við Goðið - og þar mun verða haldin hikstalaus messa .

   Heiða! Hugleiddu þennann möguleika , ég skal koma með þér upp í Hádegismóa , ef þörf gerist , ég get haft ís meðferðis , til að brúka á þig .

   Virki þessi orð mín , jafnt og að skvetta vatni á gæs , þá þakka ég þér Heiða , sem og öllum öðrum , kærlega fyrir samveruna hér á blogginu , og ekki síður BÚSÁHALDABYLTINGUNA (mótmælin) síðan í vetur sem leið .

   Lifið heil og alsæl .  

Hörður B Hjartarson, 25.9.2009 kl. 14:00

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hörður er krútt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.9.2009 kl. 15:17

19 identicon

þakk fyrir frábæra en á tíðum tilfinngaþrungna sammveru hér á blog.is :-) til þess er þetta gert að rökræða á daginn en grilla saman á kvöldin

og minnist þá sérstaklega því gífurlega starfi sem hér fór fram frá okt 08 til sérstalega stjórnarfalls, sem var afskaplega magnaður og sögulegur tími, sem sýndi að hver einasti EINSTAKLINGUR getur látið sýna rödd heyrast og hefur ÁHRIF, og hver hvunndashetjan á fætur annarar reis upp hér sem og annarstaðar og lét sína rödd óma

og allir sem en sýndu og sönnuðu að VIÐ getum skapað betra og réttlátara samfélag fyrir okkur og afkomendur að búa í

EN mikið og ervitt og gríðarmikið verk er framundan ! og ég get vel tekið undir að ervitt sé að upplýsast og miðla undir stjórn manns sem er holdgerfingur þeirra hugmyndafræði sem við erum að reyna að uppræta sé kominn með yfirstjórn yfir öllum okkar hugrenninngum !

Árni Matt hefur stundum verið erviður en Guð minn góður hvað mig grunnar að á öðrum ögurstundum Byltingarinnar þá muni "klippingar" "uppgufanir" "lokanir" hér ná undarlegri stefnu

svo ég geri fastlega ráð fyrir að hitta þig og fleiri meira annarstaðar en hér  "við veljum okkar vinni nefnilega sjálf"

Grétar Eir (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 17:14

20 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég hvet alla bloggara hér á blog.is að fara að dæmi Heiðu og færa sig, á Wordpress eða eitthvert annað og hætta að fjármagna þessa blóðsugu Morgunblaðið.

Farið sam helst ekki til Jóns Ásgeirs á blogg.visir.is. Hver vill fara úr öskunni í eldinn?

Theódór Norðkvist, 26.9.2009 kl. 00:20

21 Smámynd: brahim

Held að engin muni gráta þá sem fara af mbl.is, þetta eru svo barnalegar pælingar að það hálfa væri helming of mikið.

Standið við orð ykkar strax og lokið bloggi ykkar hér, og hættið þessu væli sem eru til þess eins að fá vorkunn út á orð ykkar.

Heiða, Brjánn og Theódór, standið við orð ykkar og lokið blogginu ykkar hér.

brahim, 30.9.2009 kl. 01:34

22 Smámynd: hilmar  jónsson

Nei nú fyrst koma allir til baka..he he

hilmar jónsson, 30.9.2009 kl. 11:47

23 Smámynd: Sveinbjörn Ragnar Árnason

23.10.2009

Ragnar Þór, um ASÍ þingið. Leið eins og sirkusapa.

Ragnar Þór Ingólfsson er nýkominn af þingi ASÍ. "Allar tillögur sem miðstjórn ASÍ eru boðnar eru hentar útaf

borðinu, ef það hentar ekki stefnu og skoðunum miðstjórnar ASÍ, 
Mér leið eins og sirkusapa með spiladós í bandi"  Ragnar Þór bætir við "  Mér er misboðið, guð hjálpi heimilinum í landinu, þessir menn taka ekki afstöðu til afnáms verðtryggingar, þeir styðja í raun verðtrygginguna. Þessir aðilar eru að vinna gegn hagsmunum launafólks. Við erum nokkrir sem ætlum að leggja til að VR gangi út úr ASÍ og að sjálfsögðu munu félagsmenn kjósa um það, það er grundvallarregla okkar að félagsmenn VR kjósi um það. ASÍ er týpískt dæmi um hjarðhegðunaráráttu fundarmanna við hirðina, ég hef áhyggjur af launafólki og fjölskyldum sem hafa fengið lánin úr bankakerfinu í hausinn. ÉGhef bara verulega miklar áhyggjur, hér á þessu þingi ASÍ er ég að verða vitni af platleik hirðarinnar gagnvart hinum almenna launamanni".  sagði Ragnar Þór að lokum.

Sveinbjörn Ragnar Árnason, 24.10.2009 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Moi

Heiða B. Heiðars
Heiða B. Heiðars

Hef verið yfirlýstur andstæðingur fréttalinkabloggara.... En framvegis mun ég linka við allar þær fréttir af ástandi þessarar þjóðar sem ég kemst yfir að linka við
Netfangið mitt er: geislabaugur@gmail.com

Bloggvinir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 556782

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband